Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 fyrir samtals 4.060 m.kr.
Í flokkinn ARION CBI 28 bárust 29 tilboð að fjárhæð 5.700 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,09 – 4,15%. Tilboð að nafnvirði 4.060 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 4,12%. Heildarstærð flokksins verður 22.000 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 12. febrúar 2025.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.