Tími: 2025-02-19 15:56:01 GMT
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki gefur út almenn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra

Arion banki gaf í dag út almenn skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra til 5 ára. Skuldabréfin bera 3,625% fasta vexti sem jafngilda 130 punkta álagi yfir millibankavöxtum í evrum.

Eftirspurn eftir skuldabréfunum var veruleg, yfir fjórum sinnum meiri en framboð, og í heild bárust tilboð frá yfir 140 fjárfestum. Endanleg tilboðsbók nam um 1,3 milljörðum evra. 

Umsjónaraðilar (e. Deal Managers) útgáfunnar voru Barclays, Deutsche Bank, J.P. Morgan og Nomura,. 


Viðhengi:
Arion banki gefur út almenn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra.pdf