Tími: 2025-03-19 14:42:57 GMT
Eik fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2025

Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 14:00 fimmtudaginn 10. apríl 2025 að Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ.

Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar félagsins auk tillagna stjórnar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er sérstök athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirhugað fyrirkomulag rafrænnar þátttöku í fundinum og tillögum um breytingar á starfskjarastefnu, samþykktum félagsins og starfsreglum tilnefningarnefndar.

Ársskýrsla, sem inniheldur ársreikning 2024, hefur þegar verið birt og sjálfbærniskýrsla er aðgengileg á heimasíðu félagsins.

Viðhengi



Viðhengi:
Dagskrá aðalfundar 2025.pdf
Skýrsla tilnefningarnefndar Eikar fasteignafélags hf. 2025.pdf
Aðalfundarboð 2025.pdf
Umboð vegna aðalfundar 2025.docx
Samþykktir - með auðmerktum breytingatillögum.pdf
Framboð til stjórnarsetu í Eik fasteignafélagi eyðublað.docx
Starfskjarastefna - með auðmerktum breytingatillögum.pdf
Framboð í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags eyðublað.docx
AGM agenda informal English translation.pdf
Proposals informal English translation.pdf
Starfsreglur tilnefningarnefndar - með auðmerktum breytingatillögum.pdf
Tillögur stjórnar fyrir aðalfund 2025.pdf