Tími: 2026-04-01 16:03:29 GMT
Eik fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2026.

Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.

Ekki hafa verið gerðar breytingar á dagskrá eða tillögum fyrir fundinn sem birtar voru með tilkynningu félagsins 24. mars 2026. Fundargögn eru á heimasíðu félagsins á slóðinni: http://eik.is/hluthafar.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að forskrá sig tímanlega á eftirfarandi vefslóð: www.lumiconnect.com/events/eikagm2026 en opnað verður fyrir forskráningu miðvikudaginn 8. apríl 2026. Atkvæðisréttur fylgir eingöngu þeim hluthöfum sem sækja fundinn.

Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is. Hluthöfum eða umboðsmönnum hluthafa sem hafa hug á að taka til máls á fundinum er boðið að upplýsa um það með tölvupósti á sama netfang.

Viðhengi



Viðhengi:
Tillögur stjórnar fyrir aðalfund 2026.pdf
Dagskrá aðalfundar 2026.pdf