Tími: 2026-08-31 09:05:23 GMT
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Kaup eða sala á eigin hlutabréfum útgefanda

Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 35 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 205.140 eigin hluti að kaupverði 8.985.132 kr. eins og nánar er greint frá hér:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)
27.08.202611:11:4465.37943,802.863.600
27.08.202612:45:56134.62143,805.896.400
27.08.202615:29:544.17943,80183.040
28.08.202610:41:3796143,8042.092
  205.140 8.985.132


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.

Sjóvá átti 3.839.198 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 4.044.338 eigin hluti eða sem nemur 0,35% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is